9.3.2009 | 21:46
Þvílíkur munur...
... að hlusta á ópólitískan fagmann í hlutverki ráðherra, eins og Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra er, í viðtölum á borð við Kastljósið í kvöld.
Viðtalið er afslappað og málefnalegt, staðreyndir á hreinu, ráðherrann þekkir sitt svið, og áhorfendur eru blessunarlega lausir við hundleiðinlegt stagl um hvaða flokkur gerði hvað og hvenær í fortíðinni.
Við gætum fengið meira af svona ef við breytum stjórnarskránni og förum að kjósa framkvæmdavaldið í beinni kosningu. Ég geri mér grein fyrir að þar mun fleira en faglegheit koma við sögu, því miður, en stjórnsýslan verður samt verulega betri með því móti. Og eins og Obama sýnir í Bandaríkjunum, er ekki útilokað að ráðherrar verði í einhverjum tilvikum valdir þvert á flokkslínur, til að skapa sátt og auðvelda ríkisstjórninni að vinna stuðning Alþingis sem verður vonandi sjálfstæðara en nú er.
Nú er bara að bretta upp ermar og drífa í að halda stjórnlagaþing. Ég hef að vísu efasemdir um að það þurfi 41 fulltrúa í 18 mánuði til þess að laga stjórnarskrána, en það er aukaatriði í stóra samhenginu. Aðalatriðið er að bæta grunn íslenska stjórnkerfisins. Án þess munum við sækja aftur í sama farið.
28.2.2009 | 19:18
Lífsgildi og boðorð
Í dag tók ég þátt í ágætri umræðu á vegum Hugmyndaráðuneytisins þar sem var meðal annars fjallað um gildi og gildismat á nýju Íslandi. Þar kom margt fínt fram, en einn þátttakandinn nefndi boðorðin tíu (og meinti þá þau boðorð sem kennd eru í trúarbragðafræði í grunnskólum, sem eru reyndar ekki eins og þau í Biblíunni, en það er önnur saga).
Þá rifjuðust upp fyrir mér lífsreglur Richard Dawkins (sem byggja á skrifum fleiri góðra manna) og viti menn, margt gæti verið öðruvísi og betra ef við færum öll eftir þeim. Þær eru svohljóðandi:
- Ekki gera öðrum það sem þú vilt ekki að aðrir geri þér.
- Í öllu sem þú gerir skaltu leitast við að valda ekki skaða.
- Komdu fram við aðra menn, allt sem lífsanda dregur og heiminn almennt af ástúð, heiðarleika, trúmennsku og virðingu.
- Ekki líta fram hjá illu eða skirrast við að fullnægja réttlæti, en vertu ávallt tilbúinn að fyrirgefa þeim sem viðurkennir rangindi og iðrast af heilindum.
- Lifðu lífinu opinn fyrir gleði þess og undrum.
- Reyndu ávallt að læra eitthvað nýtt.
- Sannprófaðu hvaðeina; leggðu mat á eigin hugmyndir út frá staðreyndum, og vertu tilbúinn að hverfa frá skoðun, jafnvel þótt viðtekin sé, ef hún rímar ekki við reynd.
- Ekki leitast við að ritskoða þig eða einangra frá andófi; virtu ávallt rétt annarra til að vera á annarri skoðun en þú.
- Myndaðu þér sjálfstæðar skoðanir á grunni eigin reynslu og raka; ekki láta leiðast í blindni af öðrum.
- Dragðu allt í efa og spyrðu spurninga.
Hvurnig væri nú, á nýju Íslandi, að fella burt "kirkju"-hlutann á dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, aðskilja ríki og kirkju, og leitast við að fylgja þessum lífsreglum? Þá værum við komin ansi vel af stað í að byggja betra samfélag.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.3.2009 kl. 18:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
25.2.2009 | 00:45
Gæti 20% skuldaniðurfærsla gengið upp?
Í síðustu færslu fjallaði ég um tillögur Framsóknar í efnahagsmálum. Ein af þeim er um 20% niðurskrift húsnæðisskulda almennings, og verðskuldar málefnalega umræðu. Sú leið er engan veginn gallalaus, en það sama má sennilega segja um alla aðra mögulega leiki í stöðunni.
Til að skýra betur hvað Framsókn er að meina, eins og ég skil það, þá er dæmið einhvern veginn svona:
- Jón og Gunna skulduðu Gamlabanka 100 kr.
- Gamlibanki afskrifar allar húsnæðisskuldir um t.d. 40% (mat á lánasöfnum er í gangi þessa dagana á vegum skilanefnda og FME, og á að ljúka fyrir 15. apríl). Skuld Jóns og Gunnu er því metin á 60 kr. og hún er færð yfir í Nýjabanka á því mati. Athugið að það eru kröfuhafar bankanna sem tapa 40 kr. í þessu dæmi, en þeir hafa þegar afskrifað lungann af sínum kröfum.
- Nýibanki selur Íbúðalánasjóði (ÍLS) skuldina á 60 kr. og losnar við hana úr sínum bókum.
- Í stað þess að rukka Jón og Gunnu um 100 kr. - og hér kemur framsóknartrixið - færir ÍLS höfuðstólinn niður í 80 kr. og rukkar Jón og Gunnu um þá upphæð (og vexti af henni). ÍLS tapar aðeins peningum á þessu ef, og að því marki sem, allir Jónar og Gunnur eru að meðaltali borgunarfólk fyrir minna en 60 kr. af þessum 80 krónum.
Framsóknartrixið veldur ÍLS (=skattborgurum) aðeins búsifjum ef meðaltalsinnheimtan verður innan við 60 kr. af þeirri ástæðu að Jón og Gunna eru rukkuð um 80 kr. en ekki 100 kr. Þau tilvik sem skipta máli í því sambandi eru þau þar sem Jón og Gunna hefðu getað borgað 100 kall en sleppa við það af því þau eru aðeins rukkuð um 80 kall. En á það ber að líta á móti að hagkerfið hressist við niðurskriftina og fleiri færast upp fyrir 60 krónu greiðslugetumarkið.
Ergó, nokkuð flókið líkan þarna á ferð, en ekki útilokað að það geti gengið upp. Stærsta spurningin er hvaða afskrift kröfuhafar gömlu bankanna sætta sig við. Ein leið til að ákveða hana er einfaldlega að bjóða upp húsnæðislánasöfn gömlu bankanna og selja þau hæstbjóðanda. Kröfuhafarnir gætu þá sjálfir boðið það sem þeir teldu lágmarksverð fyrir söfnin, en ÍLS væri falið að bjóða verð sem gæfi færi á raunhæfri afskrift eins og þeirri sem hér er lýst.
Óvenjuleg vandamál kalla á óvenjulegar lausnir. Er þetta ein af þeim?
23.2.2009 | 22:24
Framsókn til fyrirmyndar!
Á dauða mínum átti ég von, fremur en því að sjá ástæðu til að hrósa Framsóknarflokknum. En nú hefur sem sagt flokkurinn gefið út alveg ágætlega skýrar og mjög málefnalegar tillögur um aðgerðir og úrræði í efnahagsmálum. Ég er ekki sammála öllu sem þar stendur (reyndar flestu), en framtakið er mjög virðingarvert og til fyrirmyndar fyrir aðra flokka og góða stjórnmálaumræðu yfirleitt.
Umræðan er þessa dagana að sökkva ofan í kunnugleg, leiðinleg og ómálefnaleg hjólför, þar sem menn kýta án innihalds um liðin sem þeir halda með, Val eða KR, Liverpool eða United, VG eða Sjálfstæðisflokk. Má ég þá heldur biðja um alvöru rökræðu um hugmyndir og lausnir, eins og Framsóknarflokkurinn býður nú upp á. Það má hann alveg eiga.
20.2.2009 | 15:20
Hrunið í máli og myndum
Á morgun, laugardag 21. febrúar, verður Hjálmar Gíslason hjá DataMarket með afar áhugaverða kynningu á fundi Hugmyndaráðuneytisins. Uppleggið er svohljóðandi:
Gegnsæi, óhindrað aðgengi að upplýsingum og nýting gagna við upplýsta ákvarðanatöku eru allt lykilatriði fyrir Næsta Ísland og raunar heiminn allan við að vinda ofan af vantrausti í stjórnmálum, fjármálum og fyrirtækjarekstri.
Farið verður í gegnum hvernig hægt er að breyta þurrum gögnum í gagnlegar upplýsingar og jafnvel hreina afþreyingu með myndrænni framsetningu og bættu aðgengi.
Hugmyndaráðuneytið sjálft verður krufið til mergjar og skoðað hvernig sprotafyrirtæki og frumkvöðlar geta nýtt og miðlað upplýsingum sér til framdráttar.
Fjallað verður um nýstárlegar aðferðir við algert gegnsæi í fyrirtækjarekstri og að lokum kafað ofan í gögn sem varpa ljósi á ris og fall íslenska hagkerfisins - gögn sem hefðu getað varað við þróuninni miklu fyrr ef einhver hefði verið að horfa á mælana.
Fundurinn verður haldinn á veitingastaðnum Balthazar við Ingólfstorg (áður Victor, sjá kort). Fundurinn hefst kl 16:30 og er öllum opinn, en gott ef þeir sem ætla að mæta skrá sig á Facebook síðu samkomunnar.
Ég veit að þetta verður mjög myndrænt og sláandi. Hjálmar hefur gert upplýsandi líkön af fjárlögum 2009 og af staðgreiðslukerfi tekjuskatta, og ég veit að hann er með margt fleira í farteskinu sem við fáum að kíkja á á morgun. Mæli með þessu.
P.S. Til hamingju Ísland með það mat skilanefndar Landsbankans að reikningur skattborgara vegna Icesave verði "aðeins" 72 milljarðar króna!
17.2.2009 | 23:27
Staðreyndir um skuldir ríkisins
Mikill ruglingur hefur verið í umræðunni um skuldir ríkisins í kjölfar hrunsins. Í gærkvöldi komu til dæmis fram tveir nokkuð ólíkir pólar, annars vegar frá Haraldi L. Haraldssyni á opnum borgarafundi í Háskólabíói og hins vegar frá Tryggva Þór Herbertssyni í Kastljósi í sjónvarpinu.
Ég hef áður bloggað um þetta mál og vísa til þeirrar færslu og líflegrar umræðu í athugasemdum við hana.
Í þessari umræðu eru örfá lykilatriði sem þarf að hafa á hreinu til að draga réttar ályktanir og byggja á réttar ákvarðanir.
- Skattborgarar bera ekki ábyrgð á skuldum gömlu bankanna. Bankarnir eru hlutafélög og bera aðeins ábyrgð á skuldum sínum með eigin eignum, ekki eignum hluthafa (umfram hlutaféð) eða ríkisins. Gríðarlegar upphæðir tapast í hruni bankanna, en það eru lánardrottnar þeirra og hluthafar sem tapa, ekki skattborgarar.
- Eina undantekningin frá þessu er trygging innlána upp á 20.887 evrur á hvern reikning í gegn um Tryggingasjóð innstæðueigenda, sem ríkið telst bera ábyrgð á (þótt það sé ekki óumdeilt). Á þessa tryggingu mun aðeins reyna í tilviki Icesave Landsbankans, en hvorki hjá Glitni né Kaupþingi.
- Hin svokölluðu jöklabréf (glacier bonds) voru gefin út af erlendum útgefendum (Toyota, Evrópska þróunarbankanum o.s.frv.). Þau eru ekki á ábyrgð ríkisins né skuld þess. Hins vegar getur það veikt krónuna þegar eigendur jöklabréfanna selja sig út úr henni.
- Nýju bankarnir yfirtaka tilteknar eignir og skuldir frá gömlu bönkunum, nánar til tekið lánasöfn til innlendra fyrirtækja og almennings eignamegin, og innlend innlán skuldamegin. Þeir yfirtaka heldur meiri eignir en skuldir, og þurfa að gefa út skuldabréf til gömlu bankanna fyrir mismuninum, enda má ekki skerða hag kröfuhafa þeirra með þessum gjörningi. Lánin sem færast í nýju bankana eru afskrifuð fyrirfram samkvæmt sérstöku mati (sem stendur yfir) áður en þau eru flutt.
- Ríkið þarf að leggja nýju bönkunum til eigið fé, um 10% af eignum þeirra. Það fé er lagt fram í formi nýs ríkisskuldabréfs, sem bankarnir telja til eigin fjár og geta lagt sem veð inn í Seðlabanka fyrir lausum krónum. Nettóskuldir ríkisins aukast ekki við þetta þar sem það á bankana sjálft; segja má að peningar séu fluttir úr vinstri vasa yfir í þann hægri, en buxnaeigandinn er jafnsettur eftir sem áður.
- Lánið frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum er geymt á reikningi í Federal Reserve Bank of New York á innlánsvöxtum. Það verður aðeins notað til að styðja við krónuna, sálfræðilega/leikjafræðilega, og raunverulega ef brýn þörf krefur. Þá yrðu keyptar krónur sem vonandi yrði síðar hægt að breyta aftur í gjaldeyri, eða sem yrðu að evrum eftir inngöngu í Evrópusambandið. Á móti láninu stendur þannig peningaleg eign og það telst ekki til nettóskulda ríkisins, enda væri fræðilega hægt að endurgreiða það hvenær sem ríkisstjórnin svo kysi. En vitaskuld þarf að greiða vaxtamun útláns- og innlánsvaxta af upphæðinni meðan hún stendur okkur til reiðu.
Ágætis umfjöllun Greiningardeildar Glitnis um samantekt Tryggva Þórs Herbertssonar á nettóskuldum ríkisins er að finna hér. Að mínu mati er Tryggvi í bjartsýnni kantinum, en aðferðafræðin er rétt, og á tölunum er bitamunur en ekki fjár, sbr. fyrri bloggfærslu mína.
Með málflutningi mínum er ég ekki að reyna að fegra ástandið umfram tilefni. Morgunljóst er að við stöndum frammi fyrir hrundu hagkerfi og lémagna bankakerfi, og gjaldmiðilskreppu að auki; verulegri skuldabyrði, samdrætti í þjóðarframleiðslu og atvinnuleysi. Allt mjög alvarlegt og á þessu bera bæði pólitíkusar, embættismenn og einkaaðilar ábyrgð.
En fyrsta stig í að vinna á vandanum er að greina hann rétt. Menn hafa lagst í mikla reiði og jafnvel örvinglan yfir upplýsingum um skuldir ríkisins sem eru ýktar og/eða rangar. Ég tel mikilvægt að leiðrétta þann misskilning eftir föngum og auka fólki bjartsýni hvað akkúrat þann lið varðar, en ég er ekki að slá striki yfir allan vandann með því.
P.S.: Nú hefur viðskiptaráðherra tjáð sig og segir að ætla megi að vaxtaberandi skuldir ríkissjóðs verði 700 milljarðar á árinu eða um 50% af VLF. Það er minna en hjá Japan, Ítalíu, Belgíu og Bandaríkjunum, svo nokkur lönd séu nefnd.
Erlendar skuldir þjóðinni ofviða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.2.2009 kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (46)
12.2.2009 | 22:17
Fjármál ríkisins: Orðaleppar eða upplýst umræða?
Í komandi kosningabaráttu á eftir verða mikið þvargað um fjármál ríkisins. Þar mun verða farið einu sinni enn með innihaldslitla orðaleppa varðandi tekjuöflun ("hátekjuskatt") og sparnað ("niðurskurð í utanríkisþjónustu"). Orðaleppa, vegna þess að enginn virðist vera með réttar og raunverulegar tölur á hreinu, eða nógu hreinskilinn til að bera þær á borð fyrir kjósendur.
Fjárlagahalli 2009 verður 153 milljarðar skv. fjárlögum. Hallinn 2010 og 2011 er samanlagt áætlaður 160 milljarðar, en 2012 er vonast til að náð verði jafnvægi í ríkisrekstrinum. Það þarf því að spara og/eða auka tekjur um 153 milljarða frá árinu í ár til 2012.
Svo það sé afgreitt strax, þá eru heildarútgjöld utanríkisráðuneytis 12 milljarðar á þessu ári, þar af 3 til sendiráða. Ef þarna er skorið niður um helming eru 147 milljarðar eftir.
Ef lagður er á 5% hátekjuskattur til viðbótar á allar tekjur yfir 500.000 krónur á mánuði, yrði tekjuauki af því í mesta lagi 4,3 milljarðar (m.v. 2007). Segjum 4 og þá eru 143 milljarðar eftir.
Það er ljóst að orðalepparnir duga skammt. Það mun, því miður, þurfa alvöru niðurskurð, sem hlýtur að byggjast á vel grunduðum prinsippum og grundvallarafstöðu til hlutverks ríkisins, en ekki á handahófi eða loðmullu eða "þetta reddast".
Í ljósi þessa: er til of mikils mælst að frambjóðendur og flokkar útskýri hugmyndir sínar og tillögur um fjármál ríkisins með skýrum og greinargóðum hætti í komandi kosningabaráttu?
P.S. Gögn eru frá DataMarket, sem er ótrúlega sniðugt fyrirbæri. Sjá Fjárlög 2009 og Tekjuskattslíkan.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.2.2009 kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
10.2.2009 | 10:37
Úbbs! Meira að segja forsetinn skilur þetta ekki...
Fyrri ríkisstjórn náði ekki að útskýra hugsunina að baki nýju og gömlu bönkunum fyrir þjóðinni. Ég hef orðið var við að varla nokkur maður skilur þetta dæmi. Nú er greinilegt að það hefur líka farist fyrir að útskýra þetta fyrir forseta lýðveldisins. Það ætlar ekki af okkur að ganga í kjánalegri stjórnsýslu þessa dagana.
Nú ítreka ég í a.m.k. fjórða eða fimmta skiptið á þessu bloggi:
Gömlu bankarnir koma ríkinu og almenningi ekki við. Þeir eru í greiðslustöðvun og verða ósköp hefðbundin þrotabú, eins og hjá hverju öðru gjaldþrota hlutafélagi. Eignir þeirra eru í reynd eignir kröfuhafa. Því sem vantar upp á að bankarnir geti greitt kröfuhöfum, tapa þeir. Ríkissjóður bætir þeim ekki upp tapið.
Undantekningin frá þessu eru innlán sem tryggð eru í gegn um Tryggingasjóð innstæðueigenda. Ef eignir banka duga ekki fyrir lágmarkstryggingu innlána, sem er 20.887 evrur á hvern reikning, þarf Tryggingasjóðurinn að bæta það sem á vantar. Á þetta mun reyna í Icesave Landsbankans, en hvorki hjá Kaupþingi né Glitni.
Kaupþing, og þýskt útibú þess, á nægar eignir fyrir innlánum og því mun ekki reyna á innistæðutrygginguna í því tilviki. Kröfuhafarnir, þar með innistæðueigendur, fá sitt borgað úr þrotabúinu. Það er ekki íslenska þjóðin sem borgar. Þetta þurfa menn að skilja og gæta sín að ergja ekki Þjóðverja eða aðra umfram brýna nauðsyn. Við höfum ekki efni á því í stöðunni.
Þjóðverjar fái engar bætur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
8.2.2009 | 15:43
Brilljant bloggfærsla um krísu peningakerfisins
6.2.2009 | 19:22
Braut Seðlabanki bankaleynd með minnisblaðinu?
Hér birtir Morgunblaðið óundirritað minnisblað frá Seðlabanka Íslands sem hlýtur að vekja verulega athygli. Bankinn, þessi opinbera lykilstofnun, tekur sér fyrir hendur að senda fjölmiðlum tiltekin bréfaskipti milli hans og Fjármálaeftirlitsins varðandi gjaldeyrisviðskipti. FME "hefur haft efasemdir um að rétt sé að birta þess bréfaskipti vegna upplýsinga um nafngreinda aðila og fjárhæðir". Með öðrum orðum, þá er Seðlabankinn hér að brjóta bankaleynd með því að birta að geðþótta sínum upplýsingar og dylgjur um tiltekin viðskipti aðila úti í bæ, í þessu tilviki Exista hf. og Kaupþings banka hf. Og reyndar er niðurstaða FME sú að ekkert sé athugavert við viðskiptin.
Nú má spyrja: er þessi birting bréfaskiptanna eðlileg stjórnsýsla af hálfu Seðlabanka? Eða enn ein birtingarmynd þess vanda sem við er að etja í bankanum?
Svo má líka spyrja í framhaldi: hvaðan komu þeir lekar sem undanfarið hafa borist í fjölmiðla og beinast einkum að Kaupþingi? Og hvaðan hafa Egill Helgason og ýmsir blaðamenn þá sannfæringu sína að Kaupþing hafi verið í samsæri um að "fella krónuna"? (Sem nóta bene féll af fullkomlega augljósum makróekónómískum ástæðum, sem m.a. voru á valdi Seðlabankans, og þurfti ekkert samsæri til.)
Það er ekki seinna vænna að þessi þjóð fái Seðlabankastjórn sem stendur undir nafni.
FME fann ekki markaðsmisnotkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)