19.10.2010 | 23:41
Nýtt portrett
Hér er nýjasta portrettið mitt. Það er 60x40 cm, olía á léreft. Að mínu mati er svolítið eftirkreppuleg úð í þessu, allavega er það hugmyndin...
Ef þú ert ein(n) af þeim fjölmörgu sem finnst full ástæða til að fá portrett-amatör á stjórnlagaþing, þá er þér velkomið að kíkja á Framboð Vilhjálms Þorsteinssonar til stjórnlagaþings.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Er thetta Stebbi Aka?
bio (IP-tala skráð) 20.10.2010 kl. 02:27
Góð spurning - no comment
Vilhjálmur Þorsteinsson, 20.10.2010 kl. 10:06
Er uppboðsvefur í gangi þar sem hægt er að bjóða í verkið?
stebbieiriks (IP-tala skráð) 20.10.2010 kl. 13:53
Nei, myndin er ekki til sölu. Hef selt eina mynd um ævina og sé ennþá eftir því!
Vilhjálmur Þorsteinsson, 20.10.2010 kl. 16:02
Er þetta hnakkin,á Björgólfi Thor vini þínum (virðist nýrakaður á myndinni)' ? ? ? ?
Númi (IP-tala skráð) 20.10.2010 kl. 20:49
Þú segir mér fréttir Númi. Er Björgólfur Thor vinur minn? Og ennþá betri spurning: finnst þér þetta líkt honum?
Vilhjálmur Þorsteinsson, 21.10.2010 kl. 00:16
Verð að segja að þú ert all verulega góður. Af áhugamanni að vera, sem er ekki að þessu alla daga frá 11-8 (listamenn eru ekki 9-5).
Góðar þessar hér:
http://www.flickr.com/photos/villinikon/1099793590/in/set-72157602151211716/
og þessi, moderne vinna í anda renaissance málara
http://www.flickr.com/photos/villinikon/410758107/in/set-72157602151211716/
Sverrir Sv. (IP-tala skráð) 22.10.2010 kl. 14:14
Takk kærlega Sverrir!
Af því þú minnist á "moderne vinnu í anda renaissance málara" þá er gaman að geta þess að einn uppáhalds málarinn minn er Gerhard Richter. Ég er t.d. mjög hrifinn af þessari mynd hans, "Lesende" (sem vísar í Vermeer):
http://www.sfmoma.org/artwork/18252
Sá þessa mynd í eigin persónu í San Francisco fyrir nokkrum árum, það var gæsahúðarmóment.
Vilhjálmur Þorsteinsson, 23.10.2010 kl. 13:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.