Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.4.2007 | 00:05
Silkiklædda þotuliðinu haldið til haga
Eftirfarandi ummæli Ögmundar Jónassonar af www.ogmundur.is, sem segja mjög mikið um hugsunarhátt vinstri grænna, eru of merkileg til að týnast, svo ég held þeim til haga hér:
Er jafnaðarsamfélaginu fórnandi fyrir 12 milljarða og nokkra stráka og stelpur í silkigöllum; þotuliðið? Eða eigum við að snúa spurningunni við: Er þotuliðinu fórnandi fyrir meiri jöfnuð og félagslegt réttlæti? Mitt svar er játandi...
Með 12 milljörðunum meinar hann víst fjármagnstekjuskatt (10%) af hagnaði bankanna á fyrstu 9 mánuðum ársins 2006, sem var 120 milljarðar skv. blogginu. Af hverju tekjuskattur bankanna er ekki inni í þessari tölu veit ég ekki, en Ögmundur er ekkert allt of sleipur í mekanismum skattkerfisins, eða hagkerfisins yfirleitt. Upphaflegu bloggfærsluna hans Ögmundar má sjá hér.
29.4.2007 | 16:13
Bandar prins kemur víða við sögu
Mjög athyglisverð grein í New York Times um Bandar prins, fyrrum sendiherra Sádí-Arabíu í Bandaríkjunum og persónulegan vin og ráðgjafa Bush, Cheneys, Powells og fleiri stjórnarherra. Fyrir þá sem hafa áhuga á því sem gerist bak við tjöldin í stjórnmálum Mið-Austurlanda (og Bandaríkjanna) er þessi grein algjör skyldulesning. Bandar prins átti t.d. stærstan þáttinn í því að bin Laden-fjölskyldunni var bjargað út úr Bandaríkjunum á næstu dögum eftir 11. september, og fékk flugvélar undir sig, þrátt fyrir almennt flugbann.
Sádí-Arabía er nóta bene einræðisríki þar sem er öflug ritskoðun, konur mega ekki aka bílum og helst ekki ganga einar á götum úti, og lögggjöf og dómstólar fara í einu og öllu eftir sharía-lögum Íslams. En ekki hefur komið til tals að efna til sprengjuárása á landið, merkilegt nokk.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2007 | 02:15
Mistökin halda áfram
Níu bandarískir hermenn féllu í Írak í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.4.2007 | 01:33
Listi hinna staðföstu þjóða
Svona var listi hinna staðföstu þjóða kynntur á blaðamannafundi utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna í Washington þann 18. mars 2003:
MR. BOUCHER: There are 30 countries who have agreed to be part of the coalition for the immediate disarmament of Iraq. I'd have to say these are countries that we have gone to and said, "Do you want to be listed?" and they have said, "Yes."
I'll read them to you alphabetically, so that we get the definitive list out on the record.
They are: Afghanistan, Albania, Australia, Azerbaijan, Colombia, the Czech Republic, Denmark, El Salvador, Eritrea, Estonia, Ethiopia, Georgia, Hungary, Iceland, Italy, Japan, Korea, Latvia, Lithuania, Macedonia, the Netherlands, Nicaragua, the Philippines, Poland, Romania, Slovakia, Spain, Turkey, the United Kingdom, and Uzbekistan.
Takið eftir að þarna vantar t.d. Noreg, Svíþjóð, Finnland, Frakkland og Þýskaland. En litla Ísland er með, "we wanted to be listed". Svei sé því alla daga.
29.4.2007 | 01:17
Samkynhneigð: gildir bókstafur Biblíunnar bara stundum?
Kirkjuþing hafnaði því sem kunnugt er nýlega að heimila prestum Þjóðkirkjunnar að veita hjónaböndum samkynhneigðra blessun. Er í því efni vísað til kirkjuhefðar sem byggir á ritningargreinum um samkynhneigða.
Mér er spurn af þessu tilefni af hverju Þjóðkirkjan tekur þá ekki í leiðinni upp endurnýjaða umræðu um til dæmis Matt. 5.32: "En ég segi yður, að hver sem skilur við konu sína, nema fyrir hórsök, verður þess valdandi, að hún drýgir hór; og hver sem gengur að eiga fráskilda konu, drýgir hór."
Ég sé ekki rökin fyrir því að taka orð Biblíunnar um samkynhneigð bókstaflega, meðan menn leyfa hjónaskilnaði hægri og vinstri, sem ekki verður séð að Biblían líti jákvæðari augum.
Svo er reyndar margt fleira miður fallegt sem Biblían kennir og Þjóðkirkjan kýs að taka ekki bókstaflega, nenni ekki að nefna dæmi en þau eru mýmörg. Fyrir leikmann lyktar þessi fælni gagnvart jafnrétti samkynhneigðra af hræsni.
28.4.2007 | 23:20
Allt á sömu bókina lært í Írak
Íraksstríðsins verður án efa minnst sem einna helstu mistaka okkar tíma. Þar er allt á sömu bókina lært. Forsendurnar voru rangar, upplýsingarnar falskar, áætlanagerðin engin, skilningur á sögu og menningu ekki fyrir hendi, markmiðin óljós, og framkvæmdin klúður. Nú segir New York Times frá því að við endurskoðun hafi komið í ljós að uppbyggingarverkefnin - sem gumað var af til vitnis um að herförin bæri a.m.k. einhvern árangur - hafa líka mistekist, ofan á allar hinar hörmungarnar.
Ég er enn að reyna að átta mig á því hvort ráðamenn í Bandaríkjunum séu svona arfavitlausir, eða hvort einhver óopinber og leynileg áætlun sé undirliggjandi í öllu kaosinu, bara svona assgoti vel falin. Ég hélt lengi vel að hið síðarnefnda væri svarið (málið snerist í raun um olíuhagsmuni og öfgakenndan stuðning við Ísrael), en hallast nú æ meir að því fyrrnefnda.
Íslendingar eiga í fyrsta lagi að sjá sóma sinn í því að biðja Íraka afsökunar og segja sig frá þessum stríðsrekstri opinberlega, og í öðru lagi að axla ábyrgð og taka við íröskum flóttamönnum. Það væri þá fyrsta ákvörðunin í tengslum við Íraksmálið sem mannsbragur væri á.
26.4.2007 | 21:32
Allt of strangar reglur
Reglurnar um dvalarleyfi og atvinnuleyfi fólks utan EES, svo og ríkisfang, eru að mínu mati allt of strangar og í reynd mannfjandsamlegar. En það er þá einmitt því verra ef stjórnmálamenn og æðstu embættismenn geta treyst á hjáleiðir sem ekki standa öllum til boða, þvert á gegnsæja stjórnsýslu, og þurfa ekki að lifa sjálfir við hinar ofurströngu reglur þegar á reynir. Auðvitað vill enginn vera undirseldur þessum reglum þegar þær bitna á eigin skinni, þetta eru einmitt reglur sem fólki finnst allt í lagi að gildi um aðra en ekki t.d. tilvonandi tengdabörn þess sjálfs.
Sem sagt: aðalatriði málsins er að það þarf að losa um og einfalda allt regluverk í kring um það kjarkaða fólk sem langar til að flytja til Íslands. Við erum rík þjóð í fámennu og dreifbýlu landi og ef einhver getur tekið við nýju fólki, þá erum það við.
Nefndarmenn hafi tekið fram að þeim hafi verið ókunnugt um tengsl Jónínu og umsækjandans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.4.2007 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2007 | 01:44
Grunnhyggnisleg umræða um verðtryggingu
Nú hefur enn einu sinni skotið upp kollinum umræðan um að banna eða "afnema" verðtryggingu lána. Frjálslyndi flokkurinn hefur m.a. gert þetta að einu af sínum málum, sem er sterk vísbending um að málið sé bæði popúlistískt og vitlaust.
Verðtryggingin er engan veginn slæm í sjálfri sér. Verðtryggð lán eru með föstum vöxtum, jafngreiðslulán og til langs tíma. Greiðslubyrði af þeim er mjög stöðug og helst almennt í hendur við kaupmátt fólks (þ.e. verðlag, þar á meðal laun). Vegna þess að verðbólguáhætta er engin geta vextir verið tiltölulega lágir á þessum lánum.
Óverðtryggð lán hafa allt aðra eiginleika. Þau eru yfirleitt með breytilegum vöxtum, enda vilja fáir lána óverðtryggt til 25-40 ára á föstum vöxtum nema vextirnir séu þá því hærri og innifeli ríflegt verðbólgu- og áhættuálag. Það þýðir að greiðslubyrði sveiflast verulega eftir vaxtastigi í landinu, miklu meira en greiðslubyrði verðtryggðra lána. Um þessar mundir væru t.d. afborganir af dæmigerðu óverðtryggðu láni með breytilegum vöxtum gríðarlega háar og væru að sliga heimilin í landinu. Má segja að eini kostur þeirra væri að peningamálastjórnun Seðlabankans biti þá betur en nú er raunin.
Bankarnir hafa boðið óverðtryggð lán til húsnæðiskaupa og erlendu lánin sem margir taka í dag eru líka valkostur á markaðnum. Af hverju í ósköpunum ættum við að fækka valkostum á lánamarkaði með valdboði hins opinbera? Af hverju ekki bara að leyfa neytendum að velja eins og hingað til?
Afnám verðtryggingar er svona dæmigert upphrópunarmál fólks sem veit í raun ekkert um hvað það er að tala.
30.1.2007 | 00:04
Arfavitlaus Moggaleiðari um fjármagnstekjuskattinn
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)