Allt á sömu bókina lært í Írak

Íraksstríðsins verður án efa minnst sem einna helstu mistaka okkar tíma.  Þar er allt á sömu bókina lært.  Forsendurnar voru rangar, upplýsingarnar falskar, áætlanagerðin engin, skilningur á sögu og menningu ekki fyrir hendi, markmiðin óljós, og framkvæmdin klúður.  Nú segir New York Times frá því að við endurskoðun hafi komið í ljós að uppbyggingarverkefnin - sem gumað var af til vitnis um að herförin bæri a.m.k. einhvern árangur - hafa líka mistekist, ofan á allar hinar hörmungarnar.

Ég er enn að reyna að átta mig á því hvort ráðamenn í Bandaríkjunum séu svona arfavitlausir, eða hvort einhver óopinber og leynileg áætlun sé undirliggjandi í öllu kaosinu, bara svona assgoti vel falin.  Ég hélt lengi vel að hið síðarnefnda væri svarið (málið snerist í raun um olíuhagsmuni og öfgakenndan stuðning við Ísrael), en hallast nú æ meir að því fyrrnefnda.

Íslendingar eiga í fyrsta lagi að sjá sóma sinn í því að biðja Íraka afsökunar og segja sig frá þessum stríðsrekstri opinberlega, og í öðru lagi að axla ábyrgð og taka við íröskum flóttamönnum.  Það væri þá fyrsta ákvörðunin í tengslum við Íraksmálið sem mannsbragur væri á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband