Símtal Árna Mathiesen og Alistair Darling

(Skrifað upp orðrétt úr þýðingu Kastljóss, vona að það fyrirgefist...)

ÁMM: Árni Mathiesen hér, fjármálaráðherra.
AD: Sæll, við hittumst fyrir fáeinum mánuðum, vikum víst.
ÁMM: Nei, reyndar höfum við aldrei hist; þú hittir viðskiptamálaráherra.
AD: Einmitt, afsakaðu.
ÁMM: Ekkert að afsaka.
AD: Þakka þér fyrir að taka símann.  Eins og þú veist stöndum við frammi fyrir miklum vandræðum vegna Landsbankans.  Hann er með útibú hér og á innlánsreikningum þess eru um fjórir milljarðar punda.  Því hefur verið lokað og ég þarf að vita nákvæmlega hvað þið hyggist gera í því máli.  Gætirðu útskýrt það fyrir mér?
ÁMM: Já, þetta var útskýrt í bréfi sem við sendum í fyrrakvöld frá viðskiptaráðuneytinu.  Eftir það höfum við sett ný lög um forgang innistæðna og höfum veitt FME, íslenska fjármálaeftirlitinu, heimild til að fara í bankana; sambærileg löggjöf og þið hafið í Bretlandi og Landsbanki er nú undir stjórn Fjármálaeftirlitsins og þeir eru að vinna að því hvernig eigi að gera þessa hluti en ég held að þessi löggjöf hjálpi til við að greiða úr þessum vanda.
AD: Hvað með eigendur innistæðna hjá ykkur sem eiga innistæður í útibúunum í London?
ÁMM: Við höfum tryggingarsjóð innlána samkvæmt Directivinu og hvernig hann starfar er útskýrt í bréfinu og sömuleiðis loforð stjórnvalda um stuðning við sjóðinn.
AD: Svo réttindi almennings í þessu efni eru að ég tel sextán þúsund pund; og er það upphæðin sem fólk fær?
ÁMM: Tja, ég vona að það verði tilfellið.  Ég get ekki kveðið skýrt úr um það eða tryggt það núna en vissulega vinnum við að því að leysa úr þessu máli.  Við viljum sannarlega ekki hafa þetta hangandi yfir höfði okkar.
AD: Fólk spyr okkur nú þegar hvað sé um að vera þarna.  Hvenær verðið þið búnir að greiða úr þessu?
ÁMM: Eiginlega get ég ekki sagt um það.  En ég tel að best sé að Fjármálaeftirlitið hjá ykkur sé í sambandi við Fjármálaeftirlitið hér um hvernig tímasetningin á þessu verður.
AD: Skil ég það rétt að þið tryggið innistæður íslenskra sparifjáreigenda?
ÁMM: Já, við tryggjum innistæður í bönkum og útibúum banka hér á landi.
AD: En ekki í útibúum utan Íslands?
ÁMM: Nei, ekki utan við það sem nú þegar hefur verið tekið fram í bréfinu sem við sendum.
AD: En er það ekki í andstöðu við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið?
ÁMM: Nei, það teljum við ekki, og reyndar tel ég það vera í samræmi við það sem aðrar þjóðir hafa verið að gera undanfarna daga.
AD: Jæja, við lentum ekki í slíkum vanda með Northern Rock.  Ekki skipti máli hvar maður hafði sparifé sitt.  Við ábyrgðumst sparnað fólks.
ÁMM: Nú, það var allavega í byrjun deilt um það en ég þykist vita að þið hafið svo greitt úr því.
AD: Vandinn - og ég hef skilning á vanda ykkar - en vandinn er að hér hafið þið fólk sem lagði inn fé í bankann hér og það kemst svo að því nú að þið hafið ákveðið að gæta ekki hagsmuna þess.  Það spillir ákaflega mikið fyrir Íslandi síðar meir.
ÁMM: Já, við gerum okkur það ljóst og við reynum eftir okkar fremsta megni að það verði ekki vandamál.  Við erum í afar, afar erfiðri stöðu.
AD: Já, ég átta mig á því.
ÁMM: Og bara í þessari viku, þar sem við getum ekki leyst úr vandanum innanlands þá getum við lítið gert í því sem gerist utan landssteina.  Við verðum því fyrst að leysa úr málum hér innanlands og þá reynum við allt í okkar valdi og ég persónulega er bjartsýnn á að lögin sem samþykkt voru í gærkvöldi styrki þann þátt í þessu.  Og auðvitað gerum við okkur ljóst hvað gæti gerst og það viljum við ekki.
AD: Já?
ÁMM: En það er líka svo, ráðherra, að við höfum mánuðum saman reynt að ræða við alla nálægt okkur og reynt að segja þeim að við séum í vanda og beðið um stuðning og raunin hefur verið sú að stuðningurinn hefur verið mjög lítill.
AD: Ég veit það en ég verð að segja eins og er að þegar ég hitti kollega þína og þá hina, þá í raun kemur í ljós að það sem okkur var sagt reyndist ekki rétt.  Ég hafði mjög miklar áhyggjur af stöðu bankans í London og þeir héldu áfram að segja að ekkert væri að óttast.  Og þú veist, í þeirri stöðu sem við erum núna, þá er hér í þessu landi fjöldi fólks sem lagði inn fé og kemur til með að tapa ansi miklu af peningum og það fólk mun eiga erfitt með að skilja hvernig það gerðist.
ÁMM: Ég vona að það verði ekki raunin.  Ég var ekki á fundinum svo að ég get ekki sagt neitt...
AD: Ég veit það reyndar.  Geturðu sagt mér hvort tryggingasjóðurinn sem þú vísar til ráði yfir fé til útborgunar?
ÁMM: Eitthvað fé er í honum en eins og háttað er um flesta þessa sjóði er það takmarkað í samanburði við aðsteðjandi kröfur.
AD: Einmitt, svo þú veist það ekki.  Ég skil.  Ég þarf að vita þetta svo ég viti hvað ég get sagt fólki.  Það er mögulegt að ekki sé nægilegt fé í sjóðnum; er það rétt?
ÁMM: Já, reyndar er það alveg mögulegt.
AD: Það er hræðileg staða.
ÁMM: Já, við erum í hræðilegri stöðu hér og lögin sem við stóðum að því að samþykkja síðastliðna nótt eru neyðarlög og eins og ég segi þá erum við að reyna að treysta ástandið hér innanlands svo við getum mætt aðstæðum annarsstaðar.
AD: Ég því þá sem svo að loforðið sem Landsbankinn gaf okkur um að hann fengi 200 milljónir punda í reiðufé sé einnig fyrir bí?
ÁMM: Já, þeir fengu ekki það fé.
AD: Veistu, ég skil svo sem afstöðu þína.  Þú verður að gera þér ljóst að orðspor þjóðar þinnar bíður hræðilegan hnekki.
ÁMM: Já, við gerum okkur það ljóst.  Við reynum allt í okkar valdi til að komast hjá því.  Við þurfum að tryggja ástandið innanlands áður en ég get lofað þér einhverju öðru.
AD: Auðvitað væri ég þakklátur fyrir alla aðstoð sem þú getur veitt.
ÁMM: Sjálfsagt.
AD: Vissulega yrðum við að útskýra fyrir fólki hér það sem hefur gerst.  Það mun auðvitað, án efa, hafa afleiðingar í för með sér fyrir aðra.  Þetta er afar afar erfið staða þar sem fólk taldi sig tryggt og kemst svo að því að tryggingasjóðurinn er innistæðulaus.
ÁMM: Já, en eins og ég sagði í bréfinu...
AD: Gott og vel, ég þigg alla þá aðstoð sem þú getur veitt.
ÁMM: Já, við þurfum að koma á sambandi milli fjármálaeftirlits þjóðanna út af...
AD: Já, ég veit að þau verða í sambandi.  Ég veit að þú varst ekki á fundinum og tókst ekki þátt í honum.  Við efuðumst um það sem okkur var sagt og ég óttast að við höfum haft rétt fyrir okkur.
ÁMM: Já, það má vera.
AD: Hvað sem því líður vertu endilega í sambandi.  Allt sem þið getið gert til hjálpar yrði að miklu gagni.
ÁMM: Já, ef það er eitthvað ykkar megin verið þá í sambandi.
AD: Gott og vel, ég geri það.  Þakka þér kærlega fyrir.
ÁMM: Þakka þér, sömuleiðis.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Egill Jóhannsson

Árni er mjög góður í viðtalinu og ekkert út á hans orð að setja. Þau eru algerlega í samræmi við orð Geirs H. Haarde þegar hann mælti fyrir frumvarpinu um neyðarlögin.

Það sem aftur er ansi merkilegt er örvænting Darlings. Maðurinn er tekinn með allt niðrum sig varðandi málefni Landsbankans í Bretlandi því væntanlega ber hans ráðuneyti ábyrgð á málinu í Bretlandi.

Nú er málið að taka verulega hart á Bretunum. Ekki gefa þumlung eftir.

Egill Jóhannsson, 23.10.2008 kl. 23:26

2 identicon

Auðvitað á ekki að borga meira en ber og ég vona innilega að það verði hægt.   Ég trúi því ekki að mín fjölskylda sitji uppi með 20 milljónir af þessu risaláni á meðan spjátrungurinn og sonur hans eru erlendis með alla peningana.  Sagan segir að sá yngri hafi farið með ferðatöskur af gjaldeyri úr landi á föstudeginum fyrir þrot.  Önnur saga segir að þeir hafi selt sjálfum sér (Landsbankinn LUX) fyrir 37 milljarða í bankanum !  (Sjá M5.is). 

En eins og Egill þekkir sem og ég úr hinu almenna íslenska viðskiptalífi er hreinlega allt að fara í steik.  Menn tala um hóp og fjöldauppsagnir um þessi mánaðarmót.  Hjördís frænka sótti um starf, bókari hjá heildsölu í Grafarholtinu og það sóttu um 150 manns um starfið.   M.ö.o. höfum við eitthvað efni á því að vera með einhern kjaft?   Verðum við ekki að gera hreint fyrir okkar dyrum, borga upp skuldina og gera svo lögtak í þessum spjátrúngum tveimur? 

Maður spyr sig.

Árni (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 00:07

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég er alveg sammála Agli. Árni stóð sig ágætlega og Geir er að standa sig ágætlega sem þrotabús- eða dánarbússtjóri, en ég er ekki búinn að gera upp við mig hvaða titill passar betur!

Ég veit ekki hvernig verður "þjóðarréttarlega" séð að komast út úr því, sem búið er að undirrita. Held að það sé betra að flýta sér ekki og leyfa Alþjóðagjaldeyrissjóðnum aðeins að koma inn í þetta, líkt og stjórnvöld eru að gera. Best að flýta sér ekki um of í svona flókinn stöðu, sem í raun engin fordæmi eru fyrir, svo ég viti.

Það sem þjóðin spyr sig að sjálfsögðu er, hvort hægt sé að treysta aftur sama fólki og nýbúið er að klúðra öllu og er með allt niður sig - Fjármálaeftirlitið, Seðlabankinn og ríkisstjórnin? Á móti segi ég að eftir stríðið í Þýskalandi voru það að hluta til sama fólkið, sem tók við stjórnsýslunni og var að hluta til meira að segja áfram í stjórnmálum. Það hafði enginn kunnáttu og reynslu í þetta nema þeir svo höfðu verið að gera þessa hluti hjá nasistunum. Þetta er auðvitað afleit samlíking, en sú eina sem mér datt í hug!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 24.10.2008 kl. 17:26

4 identicon

Já en getur íslenska ríkið neitað að greiða Icesave reikingana því að þeir eru íslenskir en þeir eru búnir að lofa að ábyrgjast öll innlán í íslönskum bönkum.. Ef þeir neita er það ekki mismunum á þjóðerni?

Hörður (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband