16.5.2007 | 23:48
Hvað eru jöklabréf?
Síðunni hefur borist ábending um að hugtakið "jöklabréf" hafi verið notað í fyrri færslu án útskýringar. Hér er hún:
Jöklabréf = glacier bond = skuldabréf gefin út af alþjóðlegum bönkum og sjóðum en í íslenskum krónum og með íslenskum ofurvöxtum. Seld ítölskum tannlæknum og austurrískum ekkjum, sem finnst vextirnir spennandi. Einnig seld spekúlöntum sem taka lán í jenum og svissneskum frönkum á 1-3% vöxtum og kaupa jöklabréf á 11-13% vöxtum fyrir peningana, og vona að krónan falli ekki (a.m.k. ekki meira en 10% á ári).
Alþjóðlegu bankarnir taka íslensku krónurnar sem þeir fá fyrir jöklabréfin og skipta þeim aftur í íslenskum bönkum fyrir evrur, eða kaupa íslensk ríkisskuldabréf á hærri vöxtum en jöklabréfin eru, eða setja krónurnar á íslenskan peningamarkað (en þar er vöxtum haldið uppi af Seðlabankanum). Meðan þetta gengur svona áfram, styrkist krónan, það er fullt af peningum í umferð og allir eru glaðir - uns tjaldið fellur.
Um þessar mundir eru yfir 700 milljarðar af jöklabréfum útistandandi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Vilhjálmur Þorsteinsson. Spáðu í hvað kemur til með að verða ef íslenska krónan verðfellur?
Guðrún Magnea Helgadóttir, 17.5.2007 kl. 15:20
Sæll Vilhjálmur. Þetta er hin ísl. svikamilla, og óskyljanlegt að þessir okurvextir sé látnir viðgangast. Getur þú sagt í nokkrum orðum hver atburðarásin verður þegar erl fjárfestar hefja sölu á Jöklabréfunum? Mitt álit er að það verði æði þröngt í dyrunum. Er hugsanleg að verði gjaldeyrisskortur á Íslandi?
Það er að mínu áliti ekki öfundsverðir tímar í hönd fyrir nýja ríkistjórn að ná tökum á efnahagsmálum þjoðarinnar eftir góðærisbólu síðustu stjórnar.
Möguleiki er á að í eins og í flestum löndum að verði bara einn Seðlabankastjóri, og hann kannski ráðinn á faglegum sjónamiðum, en ekki notaður eins og elliheimili fyrir úrelta stjórnmálamenn, svo maður tali nú ekki um núverandi formann stjórnar Seðabankans, sem á erindi þar og hefur aldrei átt.
Það er von á breittum og betri tímum á Íslandi með nýja menn og nýjar áherzlur
haraldurhar, 17.5.2007 kl. 17:54
Þakka athugasemdirnar. Þetta ástand veldur því að krónan verður mjög viðkvæm. Það er að segja, ef hún byrjar að veikjast, þá er hætta á að allir ætli út um dyrnar á sama tíma og veikingin tví- og þríeflist. Þá mun koma afar erfitt tímabil þar sem fáir kaupendur verða að krónunni, gengið veikist mjög hratt, seljanleiki hverfur jafnvel í einhvern tíma, og Seðlabankinn mun þurfa að grípa inn í með því að hækka vexti tímabundið í gríðarlegar tölur, eins og fordæmi eru um í svipuðum krísum. Sem betur fer held ég að bankarnir séu flestir með jákvæðan gjaldeyrisjöfnuð, þ.e. eigið fé þeirra myndi ekki rýrna við þetta, en allmörg íslensk fyrirtæki eru verulega skuldsett í erlendri mynt og eiginfjárhlutföll þeirra myndu rýrna í þessari atburðarás.
Vilhjálmur Þorsteinsson, 17.5.2007 kl. 23:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.